ÞAð er nú ekki mikið að frétta en þó eitthvað.
Ég er komin með vinnu í sumar á Sjúkrahúsinu á Akranesi.
Búin að fá bíl. Lancer, algjör kaggi, he he en hannkemst áfram
og aftur á bak seem dugar mér alveg. Þannig að nú á ég 2 bíla

Tumi er orðinn pabbi, tíkin eignaðist 5 hvolpa aðfaranótt
mánudags. Ofsa spennandi.
Guðrún Margrét er farin að standa án þess að halda sér í, en er
ekkert að ofnota það
Þetta kemur hjá hennieinhvern daginn.
En ótrúlegt hvað púkinn er tætinn
Við Birgitta fórum í leikhús 4.mars. Fórum á ABBABABB. Geggjað
gaman


Við erum kannski að fara að flytja. Það verður gott að komast í
almennilegt húsnæði. MAnni líður eins og moldvörpu svona langt
niðri. Það eru viðbrigði að flytja af 3 hæð í blokk í svona
kjallara íbúð með nærri engum gluggum. Ef við flytjum þá flytjum
við í blokk og vitiði bara hvað jú alveg rétt á 3 hæð. Það er bara
með mig að ég verð aælltaf að vera svo hátt uppi
En annars eru allir búnir að liggja í einhverri bölvaðri
pest
ömulegt. Guðrún reyndar hefur sloppið nema er með
rosallegt kvef.
En meira síðar
ble ble